.
20.04.2006 22:28:00 / biggi4336

Nei

Ég er fluttur www.biggi.bloggar.is verið þið svo dugleg að skrifa ef þið viljið ekki sjá mig fella tár. Bless skrifi tossarnir ykkar.

» 0 hafa sagt sína skoðun

19.04.2006 14:41:00 / biggi4336

Cool, hann er kominn inn !!!!!!

Ég er svo hamingjusamur í tönnunum að ég gæti borðað hest.Haldið þið ekki að tannsi hafi barasta reddað málunum. Ég held líka að þetta sé í fyrsta skipti sem ég hef verið feginn að sjá pyntingarstólinn og borana í borðinu. En allavena get ég farið að úða í mig nammi og sykri á nýjann leik sem er barasta ágætis tilbreyting frá því að vera  búinn að úða í mig pillum af öllum stærðum og gerðum ( Já Lísbet ég fékk mér parkodín og mér er alveg sama hvað edrú bókin segir um það, Bill og Bob hafa örugglega aldrei fengið tannpínu) En mér fannst nú samt algjör óþarfi af tannsa að vera ráðast á mig með skömmum og látum fyrir að hugsa ekki nógu vel um tennurnar 8| En ef hann hefur nú gert þetta almenninlega þá ætti ég að geta farið að hugsa illa um þær aftur. Kv. Tannpínulausi


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.04.2006 01:01:29 / biggi4336

Áááááááááááái !!!!!!!!

Ég held að það sé verið að reyna að drepa mig úr vinnu.Nú er ég búinn að vinna tvo heila daga í röð og það er bara jafn mikið og allann síðasta mánuð held ég.Ég barði líka hanskanum í borðið og sagði stopp.Þannig að það verður engin vinna á morgun, ástæðan fyrir því er sú að ég varð að taka mér frí útaf tannpínu!!! Ég bara hefði ekki trúað því að það væri hægt að vera óvinufær af tannpínu. Ef einhver hefði sagt þetta við mig þá hefði ég ásakað viðkomandi tannpínu beranda um aumingjaskap.En þetta er alveg hrikalega sárt.Maður situr með þetta hel...... alveg að drepast og veit að það er ekkert sem maður getur gert og manni langar að taka svona þéttings fast utan um hálsinn á manninum sem er við hliðina á manni og kreista smá stund þar til hann fer svona rétt að blána, bara til að getað einbeitt sér að einhverju öðru.En pillurnar gefa manni smá frið, annars væri ég heldur ekki að skrifa á heimasíðuna, ég væri nebblega að leita mér að einhverju til að brjóta eða einhverju til að fá útrás fyrir tannpínu reiðina mína.Já ég held að mínir verstu óvinir þessa dagana séu þeir félagar Karíus og Baktus, þessu hafa þeir gaman af bölvaðir. :evil:


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.04.2006 14:13:33 / biggi4336

Biggi

Nenni ekki að skrifa neitt, það eru allt of miklir páskar hjá mér


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.04.2006 07:11:41 / biggi4336

Band brjálaður

Sko nú er ég alveg brjálaður útí síðuskoðendur (nema Rannveigu) Þið hefðuð alveg mátt skrifa coment hérna fyrir neðan. Pínulítið " vá Biggi hvað baðherbergið er orðið flott hjá þér" hefði nú varla drepið neinn.Ég er líka búinn að ákveða það að í refsiskyni fær enginn sem ekki comentaði að tannbursta sig pissa eða baða sig í baðherberginu mínu, fyrir utan Rannveig og konan í húsasmiðjuni. Var nebblega búinn að lofa henni að koma og skoða þegar það væri orðið tilbúið. En fyrir utan alla þá reiði sem ég bý yfir í garð ykkar síðuskoðenda þá er voðalega lítið að frétta.Þessi mánuður virðist ætla að verða alveg jafn skemmtilegur og sá síðasti, sem þýðir, Engin vinna + Mikið af kaffi á langa manga + Engir peningar til að borga kaffið = Ég leggst í gólfið og grenja, nema að ég grenji fyrst og leggjist svo í gólfið. Verst að það er enginn bygging nógu há hérna á Ísafirði til að hoppa fram af ef allt skyldi fara í óefni.Ég held að maður gæti í mesta lagi náð að fótbrjóta sig ef maður skyldi taka uppá því að hoppa fram af einhverri byggingu hér í bæ. Bless  


» 7 hafa sagt sína skoðun

03.04.2006 23:29:11 / biggi4336

Búið svo mikið næstum því

   

Betra seint en ekki seint.Einhvern veginn hafðist það að klára baðherbergið. Fyrir utan pínu dútl hér og þar og svo koma flísarnar á gólfið seinna.Setti inn myndir af þessu einstaka meistara verki verðið að skoða þær á http://public.fotki.com/biggi4336/  vegna þess að myndirnar hverfa alltaf ef ég set þær á heimasíðuna.


» 4 hafa sagt sína skoðun

01.04.2006 04:15:34 / biggi4336

Best að skrifa pínu

Uhhhh ??? Oki skellum einni skýrslu á þetta.Ég get ekki beint sagt að ég sé búinn að vera að drukkna í vinnu þennann mánuð. En þó búinn að afreka það að vinna 2 daga, það læt ég sko engann taka af mér. Mætti eiginlega kenna um veðurfari og latann skipstjóra.Aðalega latann skipstjóra. En mér byrjaði að leiðast mjög fljótlega eftir að vera búinn að hanga heima hjá mér og gera ekki neitt þannig að ég byrjaði á því að gera upp baðherbergið (Gerði allavena heiðarlega tilraun til þess þó ég hafi ekkert gert upp) Er samt allveg að verða tilbúið bara eftir að klára loftið og svo koma flísarnar seinna. Skutla inn myndum af þessum ófögnuði þegar það er tilbúið.En annars eru bara mínir dagar þannig að ég vakna rétt og vel rúmlega nokkrum mínútum yfir hádegi, byrja á því að negla nokkra nagla, þá hringir Steini og segir "Hey! eigum við að kíkja á Langa?? " þá segi ég " Nje sko ég ætlaði eiginlega að negla nokkra nagla í dag" þá segir Steini " Biggi þú veist að þú getur klárað það bara seinna " þá segi ég " já auðvitað hvernig læt ég!!. Ég sem var farinn að halda að það lægi eitthvað á þessu. Aaaaaauðvitað kem ég á Langa Steini minn!!!! " 

Bless:haha:


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.03.2006 01:33:17 / biggi4336

Hver ber ábyrgð á þessu??????

Svona lítur íbúðin mín út og eins og sést hér fyrir ofan þá eru klósett aðstæðurnar alls ekki góðar. Og til að toppa þetta allt saman þá er komið ryk út um alla íbúð.Ég held að megnið af þessu óvelkomna ryki hafi náð að setjast á tannburstann minn:evil: En það sem ég hef lært eftir þessa iðnaðar vinnu mína er :

A. Ég er alls enginn iðnaðar maður.

B.Það er ekki góð iðnaðarmanna blanda að vera með fullkomnunar áráttu í bland við það að vera fljótfærinn og klaufskur.Það virðist bara ekki ganga upp.

Bless.


» 6 hafa sagt sína skoðun

24.03.2006 02:12:55 / biggi4336

Bubbi rífur og byggir svo bara seinna

Hæ. Hef eiginlega ekkert getað skrifað á heimasíðuna vegna þess að ég er búinn að rífa baðherbergið í frumeindir og er að reyna að drífa það af að koma því aftur í stand.Ég er nebblega farinn að sakna þess að geta farið á klósettið án þess að eiga það á hættu að fá nagla í gegnum fótinn eða fara í sturtu án þess að eiga það á hættu að það sé engin sturta þar sem hún á að vera.Ekki er það heldur til að flýta fyrir að iðjuleysingjarnir hringja alltaf í mann til að fara á Langa og spila póker.Bölvaðir séu iðjuleysingjarnir að trufla mig iðnaðarfulla mannin.Ekki það að þeir séu að leitast eftir félagsskap.Nei eina ástæðan fyrir því að ég fæ að vera með er sú að þeir vita það að ég tapa yfirleitt alltaf nokkrum sígarettu pökkum.Reyndar veit ég það líka en samt virðist það alltaf vera jafn sniðug hugmynd að vera með. 8| Bless


» 3 hafa sagt sína skoðun

14.03.2006 06:52:32 / biggi4336

Hver þarf vini þegar hann á tölvu?? Eða líf ef útí það er farið

Já það verður sko seint sagt um mig að ég sé latur.Allavena við að gera hluti sem skipta eeeengu máli.Búinn að bæta inn myndum.Þær má finna með því að ýta á dálkinn " Fallega fólkið" Svo setti ég inn nýja mynd af Biggaóvininum, kíkið endinlega á hann.Þið getið nálgast hann hérna vinstra megin neðst :haha: Ég hafði ekkert að gera í nótt þannig að ég hékk bara á photo shop og lét mína listrænu hæfileika skína. Ótrúlegt hvað er hægt að dunda sér við þegar maður liggur veikur heima hjá sér.Fyrstu nóttina sendi ég vinum mínum hótunar sms í gegnum siminn.is.Svo horfði ég á brjálaða ketti á kvikmynd.is aðra nóttina og svo núna þriðju nóttina er ég búinn að vera að horfa á drauga í gegnum eitthvað drasl sem Erla sagði mér að fara á (Bölvuð sé hennar minning) En þetta er líka orðið bara ágætt.Nú er ég hættur að vera veikur sama hvort hitamælirinn sé sammála mér eða ekki. Bleess 


» 13 hafa sagt sína skoðun

13.03.2006 19:18:24 / biggi4336

Leiðindi

The image “http://iep2.ifrance.com/harty.rdp/bored.jpg” cannot be displayed, because it contains errors.
Mér leiðist!!!!!!!

» 0 hafa sagt sína skoðun

12.03.2006 06:08:34 / biggi4336

Allt í rusli

Nú ligg ég uppí rúmi alveg verry veikur.Þar set ég stefnuna á að vera þangað til veikin rennur af mér.Ég er búinn að koma mér þannig fyrir að ég þurfi helst ekkert að standa upp næstu daga enda lítur herbergið mitt út í samræmi við það.Ef við förum í pínu túr þá má sjá hér á hægri hönd að þar er gsm siminn og heimasiminn,tveir tómir nammi pokar,enn eitt hótunarbréfið frá þjálfa (hann hefur rosalega gaman að því að senda mér þessi hótunarbréf) og tölvan að sjálfsögðu. Nei bíddu það er vinstri höndin.En allavena þá er það hægri núna (sem verður eiginlega vinstri hendin aftur því ef ég sný mér við þá fer vinstri höndin með :haha: ) En þar höfum við tómann nammikassa,fjórar tómar pepsi max flöskur,tvo óhreina diska,óhreinan kaffibolla,pínulítið af pillum,hálsbrjósykra,og síðast en ekki síst ælufötu sem er bara ekki ennþá búið að æla í.Reikna samt fastlega í að hringja í Lísbet á morgun og bjóða henni að vera Biggavinur í tvær vikur ef hún kemur og tekur til fyrir mig.Jæja bless fyrir mig!! Skrifa kannski um ástandið í eldhúsinu á morgun (ef þið eruð heppin ) sem er reyndar alveg ágætt.Já ég skrifa ekkert um eldhúsið það er ekkert skítugt.

Þessi færsla var styrkt af:         


» 3 hafa sagt sína skoðun

11.03.2006 00:09:56 / biggi4336

Ástifanginn

Hörðu ég held barasta svei mér þá að ég sé orðinn ástfanginn finn allavegana einhverja undarlega neista í hvert skipti sem ég sé umrædda manneskju.Ég bar þetta undir hann Steina vin minn og hann benti mér á nokkra ókosti í samband við þessar tilfinningar sem ég ber til hennar en ég bætti bara við nokkrum plúsum hér og þar. Ókostur 1 - Hún á víst mann. Einhvern Loga Bergmann sem stjórnar sjónvarpsþætti og á fullt af peningum.Hvað þykist þessi Logi hafa fram yfir mig? Ég veit það líka samkvæmt áræðanlegum heimildum sem ég sótti í ímyndunaraflinu mínu að hann er ekki góður við hana.Ókostur 2 - Hún er ólétt eftir Loga en ég reikna með því að ef það yrði einhver alvara í þessu sambandi okkar þá gæti ég bara talað hana inná að fara í fóstureyðingu eða selja barnið.Ókostur 3 - Ég er allt of ljótur til að eiga séns í svona flotta gellu en mamma sagði alltaf að ég væri falleg sál þó ég væri ekki myndarlegasta barnið hennar.Ókostur 4 - Hún er pínulítið eldri en ég. Ókostur 5 - Veit ekki símann hjá henni þannig að ég get ekki sent henni svona "reyna við sms"

En þar fyrir utan þá tel ég mig vera búinn að negla þetta.:haha:


» 8 hafa sagt sína skoðun

10.03.2006 20:13:53 / biggi4336

Pleeeeeeeeebbar

Það er allt að gerast. Nú er Snorri í Fýlu útí Þjálfa, Þjálfi er í fýlu útí mig fyrir að láta Snorra fara í fýlu útí Þjálfa og ég er í fýlu útí Þjálfa og Snorra fyrir að vera í fýlu útí mig.Þaaað er svo gaman að vera kominn á það sem ég hefði haldið að væru fullorðins árin því maður kemst að því að maður virðist fara afturábak í þroska með hverju árinu sem líður. Steppi hér færðu mína opinberlega afsökunarbeiðni.Þegar þið tveir eruð búnir að biðja ALLA þá afsökunar sem þið hafið verið að niðurlægja í kringum annað fólk t.d fatlað fólk, Feitt fólk, Ómyndarlegt fólk, Fólk sem er eftir á, Fólk sem fylgir ekki alveg þeirri staðal ímynd sem þið hafið á það hvernig allir eigi að vera.Þááááááááááááá!!! skal ég biðjast afsökunar.Ef þið pleeeebbarnir ykkar takið saklaust grín svona inná ykkur þá ættuð þið ekki að gera svona mikið grín af öðrum.Og eiginlega ættuð þið að biðja mig afsökunar fyrir að biðja mig um að biðja ykkur afsökunar.


» 4 hafa sagt sína skoðun

09.03.2006 03:55:47 / biggi4336

Ég er þreyttur

Nú er ég búinn að vera að velta fyrir mér lífinu og tilveruni í einhverjar mínútur, hvert ég stefni, hvað ég ætla mér að gera o.s.f.v. og ég held að ég ætti að fá mér hest.Síðustu samskipti mín við þetta dýr enduðu samt frekar illa því helv**** hesturinn reyndi að drepa mig.Alveg grínlaust hann reyndi að henda mér fram af girðingu.Ég held líka að mér hafi sjaldan langað jafn mikið til að leggja karlmennskuna til hliðar og bara tjá hræðslu mína með því að henda mér á jörðina og fara að há grenja :haha: þannig að ég myndi þá sennilega fara rólega af stað og fá mér bara lítinn hest til að byrja með eða kannski byrja á því að kaupa mér hnakkinn og sjá svo til.En í dag buðu skyrhausarnir Þjálfi og Ester mér út að borða.Reyndar fyrir þúsund kallinn sem Þjálfi skuldaði mér (en það er hugurinn sem gildir) Ég hélt fyrst að þetta væri falin myndavél.Það gat bara ekki passað að Þjálfi og Ester voru að fara að fá sér ruslfæði á miðvikudegi.En það sem ég fattaði ekki var það að þeir selja líka gras á Fernandos.Þannig að þau hjúin átu illgresið sitt alveg með bestu lyst.

Vill taka það fram að það var Þjálfi sem kom með hugmyndina að skoðanakönnunini

bleeeeeeeeeess


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 12